Ný fréttasíða fer í loftið hjá S.G.Verkstæði

26. May 2011

Jæja þó er síðan sgverk.com að fara í gang aftur eftir meira en hálfs árs hlé.

Um er að ræða nýja og gerbreytta síðu, stefnan er að setja nú inn á hana reglulega það sem helst er að frétta bæði á S.G.verkstæði og hitt og þetta.

Það hefur svo sem ýmislegt á dagana drifið síðan í haust sem leið, má þar nefna nýtt vatnsból fyrir Borðeyri, hitaveitan sem nú er að fara í gang þessa dagana. Á næstuni verður sagt frá þessu og mörgu öðru með fullt af myndum.

Fyrsta fréttin á þessa nýju síðu er af nýrri kerru sem smíðu var á S.G.verkstæði, um er að ræða tveggja hjóla kerru sem er í 750 kg flokknum, er ekki skráningaskyld.Þarna er í raunini um gamaldags hönnun að ræða stuðst var við byggingarlag gömlu herjeppakerrana, það er reynslan á S.G.verkstæði að þessar nýju fjórhjóla kerrur eru ekki að standast kröfur um gæði, hjólalegurnar eru að fara og svo eru þessar kerrur mun leiðinlegri aftaný, enda fullkomin óþarfi að hafa fjögur hjól undir kerru sem bera má einungis 750 kg. Skúffan á Þessari nýja kerru er smíðuð úr forgalvaníseruðu 2mm stáli  sem er svo málað með hágæða bílalakki, grindin er heithúðuð, og botnin klæddur með 28mm gegnvörðu pallaefni.Það má fyllilega ætla að svona kerra sé lífstíðareign.

Myndir